Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048502, að breyta brunahólfun í kjallara, breyta fyrirkomulagi á kaffistofu starfsmanna og í uppvaski í hóteli á lóð nr. 2-8 við Mýrargötu. Tölvupóstur frá Skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 23. janúar 2017 fylgir erindi. Gjald kr. 10.100 + 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Bráðabirgðaleyfi fyrir sorpgeymslu er framlengt til 31. desember 2017. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.