Sótt er um leyfi til að opna til bráðabirgða á milli mhl 02 rými 0002 í húsi nr. 14 á lóð nr. 12-14 og mhl. 01 í rými 0001 á húsi á lóð nr. 16 við Vínlandsleið. Umsögn burðarvirkshönnuðar dags. 08. apríl. 2016 fylgir. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Þinglýsa þarf kvöð fyrir útgáfu byggingarleyfis um óbreytt eignahald og starfsemi, sem er forsenda þessarar samþykktar.