Sótt er um samþykki á áður gerðum framkvæmdum vegna lokaúttektar á erindi BN034315 og BN040137 þar sem veitt var leyfi til að lyfta vesturhlið þaks fram á veggbrún við götu á fjölbýlishúsinu nr. 19 við Barónsstíg. Stærð: 9,4 ferm., 16,9 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.