Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, fjölga herbergjum , bæta við sturtu og innrétta gististað í flokki II, teg. gistiskáli fyrir 10 gesti á 2. hæð í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 47 við Hrísateig.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2016, samþykki eiganda 0102 dags. 19. maí 2016 og minnisblað um brunavarnir dags. 23. maí 2016.
Gjald kr. 10.100