Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049183 þar sem koma fram breytingar á brunatexta í byggingalýsingu og rennihurð er fjarlægð og í staðinn kemur hliðarhurð við inngang á jarðhæð veitingastaðarins í húsinu á lóð nr. 121 við Hringbraut. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.