Sótt er um leyfi til að setja stóla og borð til útiveitinga út á gangstétt fyrir framan Eldsmiðjuna á lóð nr. 81 við Laugaveg. Meðfylgjandi er umsögn skrifstofu reksturs og umhirðu dags. 30.12. 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Allur frágangur á svæði útiveitinga er á ábyrgð umsækjanda og ber honum að sjá til þess að allt rusl sé þrifið jafnóðum og fjarlægt.