Sótt er um leyfi til að byggja íbúðar- og atvinnuhús með 72 íbúðum og verslunum á jarðhæðum, þrjár til sex hæðir á sameiginlegum bílakjallara með 20 stæðum á Brynjureit á lóð nr. 40 við Hverfisgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. október 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2016. Einnig brunahönnun frá EFLU uppfærð í september 2016, umsögn fagrýnihóps dags. 18. nóvember 2016 og bréf frá hönnuðum dags. 13. maí og 20. september 2016. Stærð A-rými: 6.495,8 ferm., 22.519,3 rúmm. B-rými: 213,1 ferm., 736,7 rúmm. C-rými: 677 ferm. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Umsögn Fagrýnihóps vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.