Sótt er um leyfi til að breyta aðalinngangi og útitröppum og loka rými undir tröppum, ásamt því að gera svalir á suðurhlið með tröppum niður í garð við einbýlishúsið á lóð nr. 5 við Básenda. Ennfremur er sótt um leyfi til að breyta burðarveggjum innandyra. Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 14. júní 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.