Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum ásamt nýjum breytingum sem fela í sér að breyta skilgreiningu á brunaflokki úr notkunarflokki 3 í 4, útbúa flóttaleið úr kjallara, fjölga íbúðum úr 8 í 9, síkka og endurnýja glugga, endurnýja svalir og bæta við svölum á suðurhlið (bakhlið) í gistihúsi í húsi nr. 78 við Hverfisgötu. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa vegna svala.