Sótt er um leyfi til að byggja nýtt garðhýsi (geymslu), breyta útitröppum samhliða endurnýjun, lækka yfirborð lóðar til samræmis við aðliggjandi lóðir og reisa steypta veggi, bæði á lóðamörkum og innan lóðar, á lóð nr. 18 við Ásvallagötu. Samþykki lóðarhafa á aðliggjandi lóðum fylgir erindi. Gjald. kr. 10.100
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.