Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 78 við Úlfarsbraut. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2016 fylgir erindinu. Stærð: A-rými 293,3 ferm., 946,1 rúmm. B-rými: 18,6 ferm. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.