Sótt er um leyfi til að skipta í tvennt rými 0202 og innrétta tvær íbúðir, 0202 og 0203, sjá erindi BN042650, og til að breyta innra skipulagi í íbúð 204, sjá erindi BN046685 á lóð nr. 13-15 við Pósthússtræti. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 24. ágúst 2016, samþykki meðeigenda dags. 24. ágúst 2016 og skýringar umsækjanda dags. 7. nóvember 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.