Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN050100 sem felst í því að fjölga íbúðum á fjórðu hæð úr sex í sjö ásamt fjölgun svala og útlitsbreytingum í húsi á lóð nr. 6 við Brautarholt. Minnkun: 2,2 ferm., 18,8 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.