Sótt er um leyfi fyrir breytingum á nýsamþykktu erindi BN051668 dags. 27.9. 2016 sem felast í stækkun rýmis fyrir loftblásara eldhúss í kjallara ásamt fitu- og fastefnaskiljum við hlið skábrautar sem breikkar í kjallara Hótels Sögu á lóð nr. 1 við Hagatorg. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.