Sótt er um leyfi til að fjarlægja bogasvalir og koma fyrir nýjum stærri svölum á suðurhlið 1. og 2. hæðar og koma fyrir nýjum svölum á rishæð í húsi á lóð nr. 58 við Flókagötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. ágúst 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2017. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til uppdrátta 10-01, 10-02, 10-03, dags. 12.10.2016.