Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 3.hæð og breyta innra skipulagi íbúða, ásamt öðrum minni breytingum til að uppfylla kröfur byggingarreglugerðar um burðarþol, brunavarnir og hljóðvist, í húsi á lóð nr. 86 við Hverfisgötu. Umsögn Minjastofnunar dags. 02.01.2017 fylgir erindi. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.