Sótt er um leyfi til að stækka millipall, koma fyrir lyftu og rúllustiga sem tengir 1. hæð við millipall, færa aðalinngang, bæta við hurð úr nýju verslunarrými, gluggum á 2. hæð austurhlið, breyta skyggni í svalir og koma fyrir flóttastiga frá þeim og flóttastiga frá norðvesturhlið og koma fyrir veitingastað í flokki II, tegund kaffihús fyrir 70 gesti í húsi á lóð nr. 1 við Fiskislóð . Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir erindinu dags. 29. nóv. 2016 Greinargerð hönnuðar dags. 15. nóvember 2016 fylgir með erindi. Stækkun millipalls: 844,7 ferm. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.