Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar sem felast í því að innréttuð hefur verið vinnustofa í kjallara í stað verkstæðis og geymslu verið skipt í tvær geymslur í fjölbýlishúsi á lóð nr. 81 við Njálsgötu. Bréf arkitekts dags. 06.12.2016 fylgir erindi. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.