Sótt er um leyfi til að breyta í fyrra horf, koma fyrir tveim íbúðum, einni á hæð, fá samþykktan þegar byggðan skúr á einni hæð með tveim geymslum og þvottahúsi við suð-austur gafl, byggja utan á liggjandi stiga, breyta glugga- og hurðasetningu og breyta innréttingum í íbúðum í húsi á lóð nr. 33A við Bergstaðastræti. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.