Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum sem orðið hafa á byggingartíma á kjöllurum, jarðhæð, 2. og 3. hæð og í glerskála, sjá erindi BN035574, BN037406, BN03748 og BN041025, vegna lokaúttektar á verslunar- og skrifstofuhúsinu Katrínartún 2, H1 og glerskála, G1 á lóð nr. 8-16A við Borgartún. Erindi fylgir uppfærð brunahönnun frá EFLU dags. 20. desember 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.