Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, sem eru þær að svalir hafa verið byggðar á 4. hæð, gluggum breytt í svalahurð og hurð út í garð fjarlægð, einnig er sótt um að innrétta íbúð á 2. hæð, byggja svalir á suðausturhlið og sameina 0102 og 0103 í eina verslun á 1. hæð húss á lóð nr. 1 við Týsgötu. Samþykki meðeigenda dags. 16. janúar 2017 og 13. febrúar 2017 fylgir erindi ásamt umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 5. desember 2016. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.