Fyrirspurn
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, sem eru þær að svalir hafa verið byggðar á 4. hæð og gluggum breytt í svalahurð og hurð út í garð fjarlægð, einnig að innrétta íbúð á 2. hæð, byggja svalir á suðausturhlið og sameina 0102 og 0103 í eina verslun á 1. hæð húss á lóð nr. 1 við Týsgötu.
Samþykki sumra fylgir erindinu dags. 16. jan. 2017 ásamt umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 5. desember 2016..
Gjald kr. 11.000