Fyrirspurn
Sótt er um breytingu á áður samþykktu erindi BN048537 sem felst í því að burðarvirki er breytt lítillega, lyftu er komið fyrir á öllum hæðum, kjallararými er grafið út, gluggum og kvisti á bakhlið breytt og flóttaleið gerð úr kjallara í húsi á lóð nr. 10 við Tryggvagötu.
Stærðarbreytingar: A-rými -1,9 ferm., + 259,5 rúmm.
Bréf arkitekts dags. 14.02.2017 fylgir erindi.
Umsögn Minjastofnunar dags. 15.02.2017 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000