Fyrirspurn
Sótt er um breytingar á áður samþykktu erindi BN050404 sem felst í því að laga bygginguna að gafli Vesturgötu 16, breyta óútgröfnu rými í kjallara í fylgirými, stækka móttöku út í ljósgarð, breyta gluggasetningu efstu hæðar að Norðurstíg og breyta útitröppum í skábraut, ásamt breytingum innanhúss sem felast í að hæðarsetning plötu er löguð að götu við innang frá Vesturgötu, breytingu á stiga í móttöku og fyrirkomulagi í hótelherbergjum vegna lagnaleiða í húsi á lóð nr. 14 við Tryggvagötu.
Stækkun A-rými 40,0 ferm., 347,9 rúmm.
Gjald kr. 11.000