Sótt er um leyfi til að aðskilja á ný áður sameinaðar íbúðir 0101 og 0201 og skipta þeim í tvö fastanúmer í húsi á lóð nr. 63 við Ásvallagötu. Samþykki meðeigenda dags. 14.02.2017 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.