Sótt er um leyfi til að breyta flokki veitingastaðar, sjá erindi BN050400, úr flokki II í flokk III fyrir 100 gesti í húsi á lóð nr. 20 við Grandagarð. Hljóðvistaskýrsla dags 2. mars 2017 og bréf frá hönnuði dags. 28. febrúar 2017 fylgir erindinu. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.