Sótt er um leyfi til að rífa mhl. 04 og hluta mhl. 02, sameina mhl. 02 og 03, byggja milligólf í bakhúsi og inndregna 5. hæð ofaná framhús og innrétta gististað í flokki V, teg. a fyrir 304 gesti í 153 herbergjum og veitingastað í flokki II, teg. a í húsi á lóð nr. 2 við Seljaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. mars 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. mars 2017. Niðurrif: Mhl.02 (hluti) 1.663,2 ferm., 6.238,5 rúmm. Mhl.04 (allur) 854,9 ferm., 4.180,0 rúmm. Stækkun: Mhl.02 (mhl.02 og 03 sameinaðir) 2.254,5 ferm., 3.627,0 rúmm. Breyting á heildar stærðum: -582,3 ferm., -12.387,7 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Uppfærðum uppdráttum vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa