Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem komu fram í lokaúttekt vegna erindis BN044678 þar sem búið er að koma fyrir salerni og eldhúsinnréttingu, setja þrjá nýja þakglugga og fjarlægja reykháf af þaki á húss á lóð nr.90 við Njálsgötu . Samþykki meðeigenda ódags. umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 28. mars 2017 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.