Sótt er um áður gerðar breytingar sem felast í því að opnað hefur verið á milli eignarhluta 0103 og 0104 og þeir nýttir sem einn, auk þess sem milliflötur í eignarhlutum 0101 og 0105 hafa verið stækkaðir, í húsi á lóð nr. 8 við Bæjarflöt. Stækkun milliflatar 0101 24,0 ferm. Stækkun milliflatar 0105 41,8 ferm. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.