Takmarkað byggingarleyfi
Lautarvegur 6 01.79.430.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 922
2. maí, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi jarðvinnu á lóð nr. 6 við Lautarveg sbr. erindi BN052616.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

103 Reykjavík
Landnúmer: 213567 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097714