Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN051999 þannig að þrír gluggar í kjallara hafa verið fjarlægðir á teikningum og sorpgeymsla sem er byggð inn í húsið er færð inn á teikningu á lóð nr. 7 við Skaftahlíð. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.