Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við Mhl.01 undir núverandi skyggni á norðurgafli ásamt því að breyta innra fyrirkomulagi í einingu 151 sem er verslun Hagkaupa á 1. hæð í verslunarmiðstöð á lóð nr. 4-12 við Kringluna. Stækkun: A-rými 24,5 ferm., 90,6 rúmm. Bréf brunahönnuðar dags. 16.05.2017 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.