Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta tveimur skrifstofurýmum á 2. hæð í tvær íbúðir sem reknar verða sem gististaður í flokki ll - tegund g og ennfremur breyta íbúðum á 3. og 4. hæð í gististað í sama flokki og tegund ásamt því að byggja svalir á 3. hæð, bæta brunavarnir og endurnýja handrið, í húsi á lóð nr. 42 við Laugaveg.
Samþykki eigenda dags. 20.02.2017 fylgir erindi.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19.05.2017 við fyrirspurn SN170351 fylgir erindi., svo og umsögn Minjastofunar dags. 13.07.2017.
Gjald kr. 11.000