Sótt er um leyfi til að gera bruggverksmiðju í mhl. 02 rými 0101 sem í dag er vörugeymsla og fá samþykktar útitröppur og áður útfærða gönguhurð á austur hlið á húsinu á lóð nr. 31 við Skipholt. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júlí 2017. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til uppdrátta 171101, 171102, 171103, 171104 dags. 22. júní 2017.