Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða viðbyggingu sem skagar út yfir neðanjarðar geymslurými í kjallara sunnan megin á lóð, fimm hæða tengibyggingu við núverandi byggingu ásamt því að stækka inndregna fimmtu hæð, útbúa nýjan inngang á norðurhlið jarðhæðar og byggja tveggja metra breitt skyggni á verslunar- og skrifstofuhús á lóð nr. 4 við Lyngháls. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 13. júní 2017 fylgir erindi, einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. júlí 2017 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júlí 2017. Stækkun: A rými 2.167,1 ferm. 8.986,6 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.