Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN052122 þar sem kemur fram færsla á vöskum og handlaugum sem og lagfæring á brunamerkingum á fyrstu hæð í húsinu á lóð nr. 11 við Pósthússtræti. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.