Sótt er um leyfi til að færa áður gerða ósamþykkta íbúð inn á aðaluppdrætti ásamt áður gerðum geymslum í kjallara, rýmisnúmerum og skráningartöflu vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar í húsi á lóð nr. 13 við Sóleyjargötu. Erindi fylgir þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. 1989. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.