Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum í kjallara þar sem geymslu er skipt upp þannig að hluti af henni sameinast rými 0001 í húsi á lóð nr. 75 við Snorrabraut. Lagt fram samþykki meðeigenda dags. 2. júní 2016. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.