Sótt er um leyfi til að gera gat í burðarvegg milli eldhúss og borðstofu og styrkja op með stálbita í húsi á lóð nr. 27 við Tómasarhaga. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18.09.2017 fylgir erindi. Samþykki meðeigenda fylgir áritað á teikningar. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.