Fyrirspurn
Þann 15.11.2013 voru samþykkt byggingaráform BN046829 að Holtsgötu 20. Þar sem gildistími þeirra er útrunninn án þess að formlegt byggingarleyfi hafi verið gefið út og samkvæmt skoðun engar framkvæmdir hafist er samþykktin úr gildi fallin. Jafnframt verða álögð gjöld felld niður eftir því sem við á.