Sótt er um leyfi til að byggja svalir á norðvesturhlið 2. hæðar, uppfæra brunamerkingar, færa til starfsmannaaðstöðu í kjallara og breyta flokkun gistiheimilis í flokk III, teg. b í húsi á lóð nr. 24 við Freyjugötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. desember 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2017. Einnig bréf hönnuðar með skýringum dags. 6. mars 2018 og minnisblað um brunavarnir dags. 7. febrúar 2018, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. apríl 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. apríl 2018. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.