Sótt er um leyfi til að minnka rafmagnsklefa 0201 sem er í sameign allra og er staðsettur í suðausturhorni húss á lóð nr. 2 við Réttarháls. Samþykki meðeigenda dags. 14. febrúar 2018 fylgir. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.