Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053531, um er að ræða að breyta innra skipulagi til að opna tímabundið yfir lóðamörk að Laugavegi 18 á 2., 3. og 4. hæð og breyta þannig fyrirkomulagi flóttaleiða í hóteli á lóðum 7 og 9 við Vegamótastíg. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Þinglýsa skal kvöð um flóttaleið yfir lóðarmörk á lóðum 18 við Laugaveg og 9 við Vegamótastíg fyrir útgáfu byggingarleyfis. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.