Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja garðskála sem verður að hluta til staðsteyptur og að hluta til úr gleri á lóð nr. 44 við Freyjugötu.
Undirritað bréf fylgir erindinu.
Samþykki frá meðeigenda nr. 44, samþykki hluta eiganda nr. 42 og samþykki frá hluta af eigendum Mímisvegar 8 fylgir.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. apríl 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. apríl 2018.
Stærð garðskála er 40,0 ferm., 108,7 rúmm.
Gjald kr. 11.000