Sótt er um leyfi til að byggja fjögurra hæða, 448 herbergja hótel, gististað í flokki lV - tegund a, þar sem kjallari og 1. hæð eru steinsteypt en efri hæðir eru úr forsmíðuðum herbergiseiningum, einangrað og klætt að utan á lóð nr. 2 við Haukahlíð. Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist dags. 14. desember 2017 og greinargerð um brunahönnun dags. 10. apríl 2018. Stærð, A-rými: 24.180,9 ferm. , 79.138 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.