Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í mhl. 01 og flóttaleiðum í húsi á lóð nr. 24 til 26 við Fellsmúla. Bréf frá hönnuði dags. 4. apríl 2018, greinargerð brunahönnuðar 3.maí 2018 fylgir erindi, einnig yfirlýsing um afnotarétt að flóttarými dags. 4.maí 2018. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.