Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á erindi BN035736 þannig að innra fyrirkomulagi í eldhúsi er breytt og komið er fyrir geymslulofti yfir hluta af bílskúr og yfir eldhús í parhúsi nr. 42 á lóð nr 42 - 44 við Úlfarsbraut. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.