Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta glugga í hurð og setja svalir og tröppur út í garð á austurhlið 1. hæðar í húsi á lóð nr. 13 við Skipasund.
Umsögn skipulags fylgir erindinu dags. 13. apríl 2018 fylgir. Samþykki frá meðlóðarhafa fylgir vegna svala og trappa.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. ágúst 2018 fylgir erindi.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Skipasundi 11 og 15, Sæviðarsundi 26, 28, 30 og 32 frá 25. júlí 2018 til og með 22. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.000