Sótt er um leyfi til að sameina íbúðir 0203 og 0204 í eina með því að gera gat í burðarvegg milli eldhúss í 0203 og forstofu í 0204 í fjölbýlishúsi nr. 10 á lóð nr. 2-10 við Rekagranda. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 16. júní 2018, samþykki meðeigenda ódagsett með vísan í samþykki löglega boðaðs húsfundar dags. 14. ágúst 2017 og umsögn burðarvirkishönnuðar einnig ódagsett. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.