Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 2. hæð, sem skipt verður í 15 vinnustofur fyrir listamenn, koma fyrir svölum á vesturhlið og fellistiga á suðurhlið og skipta rými 0109 á 1. hæð í tvö í húsi á lóð nr. 4 við Köllunarklettsveg. Umsögn Faxaflóahafna um breytingu á deiliskipulagi og samþykki meðeigenda dags. 23. maí 2018 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og með vísan til athugasemda.